Welcome to the website of Touring club of Fljótsdaldshérað
Breyting á bókunum og fleiru hjá FFF
Fyrirtækið Austurför hefur tekið að sér að sjá um bókanir í skála og ferðir fyrir Ferðafélag Fljótsdalshéraðs.
Starfsfólk Austurfarar mun svara í síma FFF 863 5813 og einnig munu þau svara pósti sem berst í
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Jafnramt mun Austurför sjá um að bóka sjálfboðaliða í skálavörslu í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs á Víknaslóðum og halda utan um félagatalið.
Við væntum mikils af þessu samstarfi.
Upplýsingar um fyrirtækið Austurför má finna á heimasíðunni www.austurfor.is
Skálavarsla á Víknaslóðum 2012
Ákveðið hefur verið að lengja viðveru skálavarða í Breiðuvík, Húsavík og Loðmundarfirði um eina viku fram á haustið og í Loðmundarfirði eina viku fyrr í júní. Þeir sem hafa áhuga á að gerast skálaverðir á þessum tíma vinsamlegast sendið póst í This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Ferðaáætlun vegna 2012 og fleira
Ferðaáætlun Ferðafélags Fljótsdalshéraðs vegna 2012 er komin út og er þar um margar spennandi ferðir að ræða, sjá ferðir.
Minnum einnig á sunnudagsgöngurnar alla sunnudaga, sjá viðburðartal.
Í janúar leggjum við áherslu á frekar léttar gönguferðir sem henta vel fyrir þá sem vilja byrja nýtt ár á að fara í göngur á sunnudagsmorgnum.
Verðum ávalt komin til baka fyrir kl. 14 - göngurnar sjálfar verða ca 2 tímar.
Í vetur er ákveðið á staðnum hvert skal haldið, með tilliti til veðurs en í maí byrjar svo spennandi sumardagskrá sunnudagsganganna.
Allir velkomnir - verð kr. 500.
Mæting við gamla tjaldstæðið kl. 10.
Helgarferð á Mývatn felld niður
Vegna ónógrar þátttöku þurfum við að fella niður helgarferðina í Mývatnssveit, sem átti að vera núna um helgina.
Sunnudagsganga verður því kl. 10 eins og alla aðra sunnudaga ársins.
Mæting við gamla tjaldstæðið. Allir velkomnir. Verð kr. 500.-
More Articles...
Page 1 of 15
Next tours
February 12, 2012 (10:00)
Sunnudagsganga FFF.
Mæting við gamla tjaldstæðið á Egilsstöðum - ákveðið á staðnum hvert skal haldið.
Allir velkomnir - Verð kr. 500
February 19, 2012 (10:00)
Sunnudagsganga FFF.
Mæting við gamla tjaldstæðið á Egilsstöðum - ákveðið á staðnum hvert skal haldið.
Allir velkomnir - Verð kr. 500





