Welcome to the website of Touring club of Fljótsdaldshérað
Myndakvöld
Þórhallur Þorsteinsson verður með myndasýningu n.k. fimmtudagskvöld 24. janúar kl. 20 hjá JG Bílum, Kaupvangi 16, Egilsstöðum. Frábær myndasýning sem hefur fengið mikið lof í Kverkfjöllum þar sem hún er sýnd á sumrin.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis en hægt að kaupa kaffi og með því fyrir sanngjarnt verð.
Raðgöngur inn með Lagarfljóti að norðanverðu
Frá og með 20. janúar n.k. ætlum við að hittast kl. 10 á sunnudagmorgnum. Ráðgert er að ganga í nokkrum áföngum inn með Lagarfljóti frá Húsey í Fellabæ.
20. janúar verður genginn góður hringur í nágrenni Húseyjar í fylgd Arnar Þorleifssonar. Síðan verður haldið áfram inn eftir Fljótinu þegar veður leyfir.
Reynt verður að fá staðkunnuga til að fylgja hópnum hvern áfanga fyrir sig.
Allir velkomnir Verð kr. 500.-.
Raðgöngur út með fljóti
Frá og með 4. nóvember n.k. ætlum við að hittast kl. 10.30 á sunnudagsmorgnum. Ath. breyttan tíma. Meiningin er að ganga út með fljóti að austanverðu í nokkrum áföngum. Um það bil 3ja tíma göngur. Allir velkomnir. Verð kr. 500.-
Vinnuferð í Kverkfjöll
Helgina 7.-9. sept.n.k. verður vinnuferð í Kverkfjöll þar sem m.a. verður gengið frá skálanum fyrir veturinn.
Áhugasamir skrái sig fyrir miðvikudagskvöldið 5. sept. í síma 893 2858 eða í This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Ferðafélagið leggur til mat.
More Articles...
Page 8 of 9
Next tours
September 10, 2010 (17:00)
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á vinnu- og fjölskylduferð í Kverkfjöll frá föstudegi til sunnudags.
Áhugasamir skrái sig í síma 863 5813 eða í ferdafelag@egilsstadir.is
September 11, 2010 (8:00)
Ekið til Borgarfjarðar eystri. Gengið frá Jökulsá upp á hátindinn og gengið niður að dyrum. Gengin sama leið til baka
Fararstjórar Skúli Júlíusson og Óskar Ingólfsson www.wildboys.123.is
Mæting við gamla tjaldstæðið á...





