Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-11.jpg
Tónlistarskólar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Tónlistarskólar eru starfræktir á Egilsstöðum, í Fellabæ, Brúarási og auk þess starfa deildir á Hallormsstað.
Mjög mikil þátttaka er í starfi tónlistarskólanna og tónlistarskólarnir gegna mikilvægu hlutverki í menningarstarfi sveitarfélagsins. Skólarnir hafa hver og einn skapað sér sérstöðu og því er val á tónlistarnámi óvenju fjölbreytt og ættu allir tónlistaráhugamenn að geta fundið svörun við sínu áhugamáli í starfi þeirra. Fjölbreytnin í starfi tónlistarskólanna glæðir menningarstarfið fjörmiklu lífi.

 

Tónlistarskólinn Egilsstöðum og Hallormsstað

Tónlistarskólinn á rætur að rekja aftur til 1971 þegar fyrirrennari hans, Tónskóli Fljótsdalshéraðs var stofnaður. tonlistarskolinn_egilsstodumHöfuðstöðvar skólans eru að Selási 20, Egilsstöðum. Þar er skrifstofa og aðalstarfsstöð skólans. Rúmlega 150 nemendur stunda einstaklingsnám við skólann á fjölmörg hljóðfæri auk söngnáms. Áhersla hefur verið á að bjóða upp á fjölbreytt nám í klassískri tónlist, en jafnframt fá nemendur tækifæri til að spreyta sig á poptónlist. Reglulega eru haldnir tónfundir þar sem nemendur fá tækifæri til að koma fram auk þess sem stærri tónleikar eru haldnir nokkrum sinnum á skólaárinu. Flestir stærri tónleikar fara fram í Egilsstaðakirkju.
Hafinn er undirbúningur að nýbyggingu fyrir skólann og er gert ráð fyrir að hún verði í næsta nágrenni við Egilsstaðaskóla, enda þar jafnframt stutt í aðrar skólastofnanir.
Skólastjóri er Steingrímur Birgisson. 

Tónlistaskólinn á Egilsstöðum
Selási 20
Sími: 4700 645
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Veffang: http://www.fljotsdalsherad.is/tonegilsstodum/
 

Tónlistarskólinn í Fellabæ

Tónlistarskólinn var stofnaður árið 1994 og fyrsti skólastjórinn var Rosemary Hewlett. Ármann Einarsson tók við skólastjórn árið 1995 og gengdi því starfi til vors 2004 og má segja að hann hafi markað þá skólastefnu sem fellaskoliskólinn starfar eftir í dag

Nemendur hafa undanfarin ár verið um 80-90, en hafa flestir verið um 100. Kennarar eru 4 auk skólastjóra. Vinsælust er poppdeildin þ.e. t.d. gítar, trommur, bassi og poppsöngur, en einnig er kennt á píanó, harmonikku, þverflautu, fiðlu, blokkflautu og hljómborð. Þá er einnig starfræktur forskóli fyrir þau börn sem byrja í grunnskóla að ári.

Skólinn er staðsettur á efstu hæð í Fellaskóla og hefur þar þrjár stofur til umráða, en einnig hefur hann aðgang að æfingahúsnæði í kjallara skólans. Í gegnum árin hefur skapast mikið og gott samstarf við Fellaskóla og má nefna að nemendur Fellaskóla hafa fengið að sækja tónlistarskólann á skólatíma og má segja að hefð sé komin á það skipulag. Einnig kemur tónlistarskólinn oft að árshátíð grunnskólans.

Skólastjóri er Drífa Sigurðardóttir.

Tónlistarskólinn í Fellabæ
Sími: 4700 646
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Veffang http://www.fljotsdalsherad.is/tonfellabae/

 

Tónlistarskólinn á Brúarási

Tónlistarskólinn í Brúarási er starfræktur í sínu eigin húsnæði í Brúarásskóla. Stefna skólans er bruarasskoliað sinna þörfum hvers og eins og nemendur, sem eru um 40, eru á öllum aldri. Hljóðfærarúrvalið er fjölbreytt, og jafnframt hafa nemedur stundað söngnám. Áhersla er jöfn á iðkun popp og klassískrar tónlistar.  Náið og gott samstarf er við grunnskólann á Brúarási þar sem nemendur fá að sækja tónlistarnám sitt á skólatíma.  Tónlistarskólinn tekur þátt í ýmsum viðburðum í grunnskólanum svo sem litlu jólum og árshátíðinni.


Skólastjóri skólans er Jón Arngrímsson. 

Tónlistarskólinn á Brúarási
Sími: 4 700 628
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Veffang: http://www.fljotsdalsherad.is/tonbruaras/
 

 

 

 
Borði
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs