Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-05.jpg
Sorphirða Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Á haustdögum 2009 tekur gildi svo kallað þriggja tunnu sorphirðukerfi hjá Fljótsdalshéraði. Það felur í sér að lögð er áhersla á frekari flokkun heimilissorps. Markmið sveitarfélagsins, í samvinnu við íbúana, er m.a. að draga úr urðun lífræns sorps um 65 % fyrir árið 2020, sem er í anda reglugerðar 737/2003 um meðhöndlun úrgangs, sem sett er með hliðsjón af tilskipun 1999/31/EB um urðun úrgangs. Þetta er einnig í samræmi við áherslur í Stefnu Fljótsdalshéraðs , þar sem segir: „Fráveitu- og úrgangsmál í sveitarfélaginu byggja á umhverfisvænum lausnum sem skipa því í fremstu röð á þessu sviði. Þjónusta sveitarfélagsins við íbúa og fyrirtæki miðar að því að þeim úrgangi sem myndast sé komið í endurnotkun og endurnýtingu um leið og áhersla er lögð á að dregið sé með skipulögðum hætti úr myndun úrgangs eins og unnt er.

Hér má nálgast samþykkt um meðhöndlun úrgangs á Fljótsdalshéraði

Hér má nálgast gjaldskrá fyir sorphirðu og sorpeyðingu á Fljótsdalshéraði

Með því að taka upp þriggja tunnu kerfi er verið að auðvelda íbúum að taka þátt í mótun
umhverfisvæns samfélags og að flokka sorp á sem þægilegastan hátt. Samstarf við íbúa er mjög mikilvægt og nauðsynlegt að þeir finni hjá sér þörf til að vera hluti af því verkefni að minnka sorp til urðunar og auka endurvinnslu.

Þriggja tunnu kerfið gerir ráð fyrir að í þéttbýli fái hvert heimili afhentar þrjár tunnur. Eina  fyrir almennt sorp, eina fyrir flokkað sorp og eina fyrir lífrænt sorp. Flokkaða sorpið verður allt flutt til endurvinnslu, lífræna sorpið fer til moltugerðar en almenna sorpið er það eina sem fer til urðunar. Í dreifbýli sveitarfélagsins fá íbúar eina tunnu fyrir endurvinnsluhráefni, eina undir almennt sorp og moltugerðarílát fyrir lífrænan úrgang.

Í Sorphirðuhandbókinni er að finna upplýsingar um sorphirðuþjónustuna s.s. um flokkun sorpsins og sorpflokka, flokkunarílátin. Hér má finna sorphirðudagatal fyrir þéttbýli 2010 og sorphirðudagatal fyrir dreifbýli 2010

Hér má nálgast heimasíðu Flokkarans, varðandi flokkun sorps.

Hér eru upplýsingar um einfalda leið til að útbúa tunnuskýli.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um jarðgerðarílát

Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar um jarðgerð

Flokkunartafla - Græna tunnan

Flokkunartafla - Brúna tunnan

Recyclables - Green bin

Food waste - Brown bin

Tablica segregacji _ Zielony pojemnik

Tablica segregacji - Brazowy pojemnik

Spurt og svarað – hér, á heimasíðu Íslenska gámafélagsins má finna svör við ýmsum spurningum varðandi flokkun sorps. Einnig má hafa samband við verkefnastjóra umhverfismála hjá Fljótsdalshéraði með því að senda honum tölvupóst hér.

Opnunartími móttökustöðvarinnar að Tjarnarási 9, Egilsstöðum, er eftirfarandi:
Virka daga frá kl. 10:00 til kl.17:00 og á laugardögum frá kl. 10:00 til 14:00. Lokað er á sunnudögum nema frá 1. maí fram til 1. september er stöðin opin á sunnudögum frá kl. 12:00 til  14:00.

Það er Íslenska gámafélagið sem sér um sorphirðu í sveitarfélaginu samkvæmt samningi við Fljótsdalshérað.

Íslenska gámafélagið
Sími móttökustöð: 471 1111
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

sími: 577-5757
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.gamur.is


Fyrirtæki sem þurfa á sorphirðuþjónustu að halda geta snúið sér að þeim aðilum sem veita þeim þjónustu, sem eru t.d. Íslenska gámafélagið, Dagsverk og Gámaþjónustan.

 

 

 
Borði
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs