
| Saga sveitarfélagsins |
|
|
|
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað varð til 1. nóvember 2004, við sameiningu Austur- Héraðs, Fellahrepps og Norður- Héraðs. Þéttbýlið Egilsstaðir og Fellabær styður sterk byggð í dreifbýlinu með blómleg landbúnaðarsvæði og smærri þjónustukjarna á Hallormsstað, Eiðum og Brúarási. Sveitarfélagið er mjög víðfeðmt og er nú það landmesta á Íslandi. Stærð þess er 8.884 ferkílómetrar Sveitarfélagið afmarkast af Jökulsá á Fjöllum í vestri að Biskupshálsi um Möðrudalsheiði og Hárekstaðaheiði, norður Smjörfjöll og Hellisheiði norður í Kollumúla í Héraðsflóa. Að austanverðu afmarkast það frá Bótarhnjúkum sem er á mörkum Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps og Djúpavoghrepps, þaðan um Breiðdalsheiði og Austurfjöll í Skriðdal yfir á Fagradal um Gagnheiði og um Austurfjöllin í Gripdeild í Héraðsflóa. Miðkjarna Fljótsdalshéraðs mynda þéttbýlin Egilsstaðir og Fellabær sem greiðar samgöngur á landi og í lofti hafa gert að virkum vegamótum og þar hefur því vaxið upp ýmiss konar starfsemi bæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila. Um miðbæ Egilsstaða liggja helstu krossgötur Austurlands og umferðarmestu gatnamót þjóðvega í fjórðungnum. Flestir íbúa Fljótsdalshéraðs starfa við þjónustu og opinbera starfsemi og á Egilsstöðum og í Fellabæ hefur þróast mikil samgöngu- og verslunar- og þjónustumiðstöð sveitarfélagsins og alls Mið-Austurlands. Alþjóðaflugvöllurinn á Egilsstöðum gegnir mikilvægu hlutverki, meðal annars vegna ferðaþjónustu á svæðinu en í sveitarfélaginu eru einnig nokkur hótel, gisti- og veitingastaðir. Landbúnaður er stundaður í dreifðum byggðum hins víðfeðma sveitarfélags þannig að sauðfjárbúskapur er stundaður á um 90 jörðum og mjólkurframleiðsla á tæplega 20 búum og þá fer skógrækt fram á um 85 jörðum um þessar mundir. Á sviði heilbrigðisþjónustu er til staðar í sveitarfélaginu heilsugæslustöð, dvalarheimili aldraðra og sjúkrahús, tannlæknastofa og einnig dýraspítali. Skólastarf hefur sett svip sinn á samfélagið til margra ára og má þar nefna skólasetrin að Eiðum og Hússtjórnarskólann á Hallormsstað. Menntaskólann á Egilsstöðum hefur starfað frá 1979 en þar eru nemendur á fimmta hundrað allt í allt. Skrifstofa Þekkingarnets Austurlands er í sveitarfélaginu og Vísindagarðurinn ehf var stofnaður 2007. Í sveitarfélaginu eru starfræktir fjórir leikskólar með um tvö hundruð og fimmtíu börnum. Grunnskólastarf fer fram á fjórum stöðum, en nemendur þeirra eru vel á sjötta hundraðið. Tónlistarskólar eru starfræktir á fjórum stöðum á vegum þriggja tónlistarskóla. Sveitarfélagið rekur jafnframt bókasöfn og minjasafn, íþróttamiðstöð og íþróttahús, frjálsíþróttavöll og knattspyrnuvelli, sundlaug, félagsmiðstöðvar, félagsheimili og þjónustumiðstöð. Hitaveita Egilsstaða og Fella sér þéttbýlinu fyrir heitu og köldu vatni. Stjórnsýsla sveitarfélagsins var endurskipulögð við sameiningu sveitarfélaga árið 2004 með það að markmiði að ná fram meiri skilvirkni í einstökum málaflokkum. Stjórnsýslan einkennist nú af svo kölluðu flötu skipulagi þar sem undir bæjarstjóra vinna 7 deildastjórar sem hver um sig sinnir ákveðnum málaflokkum með viðkomandi fagnefnd.
|